|
[
heim |
ný færsla
]
Bjartur Bóas Sun Jul 13 15:09:57 2008
Við skírðum soninn í gær og heitir hann Bjartur Bóas. Athöfnin fór fram heima hjá mömmu og pabba og veislan sömuleiðis. Nánustu ættingjarnir mættu til að gleðjast með okkur (að undanskildum einum eða tveimur sem ekki komust) og var dagurinn í heild skemmtilegur og vel lukkaður. Bjartur var yndislegur að vanda. Kúturinn vakti meðan á athöfninni stóð og svaf svo mestalla veisluna, í fanginu á hinum og þessum. Takk allir kærlega fyrir daginn :-) [ bókamerkja færsluna | breyta ]
Júní 2008 - barnamánuðurinn mikli
Þá hefur fæðingarmánuður litla kúts runnið sitt skeið og öll hin börnin sem við áttum von á í þeim mánuði einnig komin í heiminn. Að litla kút meðtöldum voru börnin hvorki fleiri né færri en 8 talsins, og fjögur þeirra komu í sömu vikunni :-) Fyrst skal nefna Erlen vinkonu sem átti sinn litla gutta 9. júní. Tveimur dögum seinna, 11. júní, kom Þórðardóttir, frænka litla kúts. Svo kom litli kútur Hinriksson 12. júní, eins og allir vita, og fast á hæla hans kom Aníta Rán Elfarsdóttir, 13. júní. Þetta var nú meiri vikan. Litli kútur eignaðist svo nýjan frænda 22. júní; Óttarsson. Svo var það 28. júní sem Anna Sigrún kom með tvíburastelpurnar sínar, og sama dag kom Steinþóra vinnufélagi með strákinn sinn. Litli kútur er voða heppinn að eiga svona marga jafnaldra leikfélaga sem dreifast svona fínt á fjölskyldurnar og vinahópana. [ bókamerkja færsluna | breyta ]
Settur dagur
Þá er hann runninn upp, settur dagur samkvæmt sónar. Og litlinn okkar er orðinn 12 daga gamall :-) Það gengur allt rosa vel og hann er bara yndislegastur :-) [ bókamerkja færsluna | breyta ]
Hinriksson mættur
Við Hinrik eignuðumst gullfallegan lítinn dreng kl. 04:13, 12. júní, eða á áttræðisafmælisdegi langafa síns. Hann vóg 2975 grömm eða tæpar 12 merkur, og var 48,5 cm langur. Hann er ótrúlega vær og duglegur og við höfum barasta aldrei séð jafn fallegan dreng :-) Við þökkum fyrir allar fallegu kveðjurnar sem þið hafið sent okkur. Okkur þykir mjög vænt um þær. [ bókamerkja færsluna | breyta ]
Framkvæmdir, flug og fjögur ár
Við erum búin að vera voða afkastamikil síðustu daga. Um helgina kláruðum við að kaupa helstu nauðsynjar fyrir krílið. Það var mjög skemmtilegt og mikill léttir að það sé frá. Svo sóttum við meira að segja bílstólinn í gær, og þá er bara eftir að dunda sér við undirbúninginn heima. Hinrik og tengdapabbi munu að öllum líkindum klára framkvæmdirnar í þvottahúsinu í kvöld, og þá getum við farið að taka til og raða í skápa. VEEEEI :-) Hinrik byrjaði að fljúga í morgun og nær vonandi nokkrum flugum í viðbót áður en hann fer í orlof. Mín er á hinn bóginn farin að telja niður dagana sem hún á eftir að vinna. Það hefði verið kúlast að hætta í dag, af því ég á fjögurra ára starfsafmæli hjá fyrirtækinu, en það er víst ekki í boði. Ojæja. [ bókamerkja færsluna | breyta ]
Nudd Ég fór í nudd í gær í fyrsta sinn. Hinrik góði bauð mér. Það var voða notalegt. Bara það að geta legið á maganum í fyrsta sinn á árinu var nóg til að gleðja mig. Maður hefur sko saknað þess. [ bókamerkja færsluna | breyta ]
Mikið að gera
Vó, vika strax liðin. Tíminn líður allt of hratt. Erum (þ.e. Hinrik og tengdapabbi) að verða búin að setja upp rosa fína innréttingu í þvottaherberginu. Fullt af flottu skápaplássi jibbí. En vegna framkvæmda er allt í drasli og þykkt ryklag yfir öllu. Og þvottagrindin er inní stofu af því nú er ekkert pláss fyrir hana inní þvottaherbergi og við eigum eftir að finna nýja lausn á því. Og á kvöldin hefur mín bara enga orku til að fara að vinna í þessu öllu saman. Ég sem hélt að ég ætti að vera komin í hreiðurgerð á fullu.. á það ekki annars að gerast á síðustu vikunum, að maður fari bara á milljón í þrifunum? Ég bíð allavega enn eftir því. Eins gott að þetta barn sitji sem fastast í nokkrar vikur í viðbót. Annars erum við Hinrik búin að fara á öll námskeiðin, það síðasta var brjóstagjafanámskeið í gærkvöldi. Þannig að að því leitinu til erum við tilbúin. Vitum allt um meðgöngu og fæðingar og brjóstagjöf. Vitum reyndar ekkert um hvað gerist eftir að barnið er fætt og komið á brjóst... ehemm maður ætti kannski að fara að skoða það? So much to do... so little time. [ bókamerkja færsluna | breyta ]
Í dag Svo gaman að eiga afmæli :-) :-) :-) [ bókamerkja færsluna | breyta ]
Heitt
Ég er með innbyggðan ofn og hann er ansi oft stilltur á hæstu stillingu. Aumingja Hinrik er alltaf kalt því ég þarf alltaf að hafa alla glugga galopna. Ég sef með þunna ábreiðu sem má þó ekki vera yfir mig alla, og ég er alveg búin að sjá það að síðerma flíkur eru á bannlista. Við skulum ekki einu sinni ræða svitann í ræktinni. Hvernig er þetta hjá konum sem búa í heitum löndum?! [ bókamerkja færsluna | breyta ]
Fjölskyldubíll og hiksti
Aaah. Svo gott að mæta endurnærð í vinnuna eftir 4 daga frí. Og nú á ég bara eftir að vinna fulla vinnu í mánuð. Það er ekki neitt :-) Eitt af því sem við gerðum í fríinu var að kaupa okkur fjölskyldubíl. Hann heitir Subaru Legacy og á ábyggilega eftir að reynast litlu fjölskyldunni vel. Barnið er duglegt að gera öndunaræfingar. Það fær hiksta oft á dag. Til dæmis núna. [ bókamerkja færsluna | breyta ]
|