[ heim | dagbók

Sérverkefni vei
Mon Sep 15 13:45:17 2003

Síðustu tvær vikurnar hef ég beðið milli vonar ótta eftir því að ákveðnar frumur yrðu til. Ekki var víst að hægt yrði að rækta þær, sem hefði þýtt að ég þyrfti að finna nýtt verkefni. Nú var ég hins vegar að fá upplýsingar um að þær væru loks farnar að vaxa og dafna meira að segja vel. Sem þýðir að ég get farið að byrja á sérverkefninu mínu jibbí. Mig langar rosalega mikið til að klára það fyrir jól, en þar sem þetta er 8 eininga verkefni á það að taka 8 heilar vikur, og þar sem ég get aldrei mætt nema í mesta lagi hálfa vikuna mun það taka 16 vikur. Eru hins vegar aðeins 14 vikur til jóla (jibbí!) svo ég þarf líklega að klára að skrifa eftir áramót. Oh well þá verður bara að hafa það.

Núna sit ég uppí Læknagarði og er að vinna í lokaskýrslunni fyrir Nýsköpunarsjóðinn. Bleh...

[ breyta ]


[ ný færsla ]

Brynja Ásdís Einarsdóttir