|
Vinni vinn Tue Nov 5 14:13:34 2002
Sælinú. Ég er uppí vinnu að reyna að bæta upp fyrir mistök gærdagsins. Fljótlega eftir að ég kom áttaði ég mig samt á því að ég hafði klárað RDA-bufferinn minn og án hans get ég ekki gert PCR, svo varð fyrst að byrja á því að búa hann til og prófa hann sem mun jú taka allan daginn í það minnsta. Semsagt set-back um alla vega viku. Það er ótrúlegt hvað Hansi er samt alltaf kátur sama hvað ég klúðra miklu. Í hvert sinn sem ég er búin að manna mig upp í að segja honum frá því nýjasta, þá bara skælbrosir hann og segir "TIL HAMINGJU.. svona er þetta ;-)", og lætur mig svo endurtaka leikinn. Það er líka eins gott, því ef hann yrði fúll eða reiður þá myndi ég örugglega hætta að þora í vinnuna, nógu er ég skömmustuleg fyrir. Jæja, best að halda áfram. Sendið mér góða strauma. Og póst. Hvernig væri að einhver sendi mér póst einu sinni til tilbreytingar?! Ég vil póst takk núna. Takk. Bless. Brynja freka [ breyta ] |