[ heim | dagbók

Léleg ferð í deCODE
Sat Mar 9 19:13:34 2002

Í gær var vísindaferð í deCODE. Hún byrjaði á smákynningu í voða fínum sal. Við áttum að horfa á kynningarmyndband en hljóðið fór af eftir svona mínútu svo við horfðum á afganginn án hljóðs og reyndum að gera okkur í hugarlund hvað verið var að segja. Kallarnir nenntu svo ekki að sýna myndina aftur sem var frekar skítt. Síðan var göngutúr um bygginguna sem er svakalega flott. Okkur var skipt í þrjá tuttugu manna hópa. Leiðsögukellingin í mínum hóp þóttist vera voða klár líffræðingur, en svo sagði hún okkur bara frá svölunum, sýndi okkur salernin og eldhúsið og hvar loftræstikerfið var, hver arkitekt hússins er og hvaðan spýturnar á gólfið komu. Hún minntist ekki einu orði á neitt tengt neinum verkefnum eða hvað öll flottu tækin gerðu. Semsagt vitlaus og leiðinleg kelling. Einu sinni heyrðum við brot af því sem annar leiðsögumaður var að segja og það var áhugavert. Ég var mjög svekkt að vera ekki í þeim hóp því hann sagði þeim frá öllum tækjunum í öllum stofunum. Loks var boðið uppá ógrynnin öll af bjór og snittur með. En þar sem ég ætlaði ekki að skemmta mér það kvöldið og var á bíl, þá græddi ég ekki einu sinni bjórinn. Ég semsagt græddi ekki bofs á ferðinni og finnst mér það hundfúlt því ég er viss um að ég hefði getað lært ýmislegt skemmtilegt hefði konan verið með viti og tæknimaður verið á staðnum.

Í kvöld ætla ég svo að hitta stelpurnar; Ásdísi, Írisi, Ólöfu og Erleni. Við ætlum að drekka rauðvín og borða osta og vínber. Og svo förum við kannski að dansa á Gauknum því þar eru mennirnir í svörtu að spila. Ég hlakka mikið til.

[ breyta ]


[ ný færsla ]

Brynja Ásdís Einarsdóttir